27 Mars 2012 12:00

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrír þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ og einn í Mosfellsbæ. Fimm voru teknir á laugardag, fjórir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-57 ára. Tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.