7 Ágúst 2012 12:00

Þrjátíu og fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um verslunarmannahelgina. Tuttugu og níu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, fjórir í Kópavogi og einn í Hafnarfirði. Tíu voru teknir á laugardag, fjórtán á sunnudag og tíu á mánudag. Þetta voru þrjátíu karlar á aldrinum 18-67 ára og fjórar konur, 19-30 ára. Sjö þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.