4 September 2012 12:00

Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrettán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Átta voru teknir á laugardag, fimm á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru þrettán karlar á aldrinum 19-59 ára og ein kona, 24 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og tveir hafa aldrei öðlast ökuréttindi.