30 Október 2012 12:00

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sjö þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og þrír í Hafnarfirði. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, þrír á laugardag, fjórir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 22-43 ára og þrjár konur, 24-42 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.