8 Október 2012 12:00

Sextán ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í bæði Kópavogi og Hafnarfirði og einn í Garðabæ. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, níu á laugardag og fimm á sunnudag. Þetta voru fimmtán karlar á aldrinum 20-59 ára og ein kona, 21 árs. Fimm þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.