22 Janúar 2013 12:00

Níu ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Hafnarfirði og Garðabæ. Fjórir voru teknir á laugardag og fimm á sunnudag. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 17-51 árs og tvær konur, 18 og 34 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.