14 Janúar 2013 12:00

Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tólf þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Garðabæ. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, þrír á laugardag, átta á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru tólf karlar á aldrinum 16-63 ára og tvær konur, 22 og 54 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og tveir hafa aldrei öðlast ökuréttindi.