7 Janúar 2013 12:00

Þrettán ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og einn í Kópavogi, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi. Fimm voru teknir á laugardag, sjö á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru tíu karlar á aldrinum 18-44 ára og þrjár konur, 19-24 ára. Fjórir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og tveir hafa aldrei öðlast ökuréttindi.