18 Mars 2013 12:00

Átján ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fjórtán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Garðabæ og einn í Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Sextán voru teknir á laugardag og tveir á sunnudag. Þetta voru sextán karlar á aldrinum 17-63 ára og tvær konur, 20 og 40 ára.