11 Mars 2013 12:00

Átján ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sextán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Mosfellsbæ. Sex voru teknir á laugardag, tíu á sunnudag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru sautján karlar á aldrinum 18-53 ára og ein kona, 44 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.