29 Apríl 2013 12:00

Fimmtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tíu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Hafnarfirði og einn í Kópavogi og Garðabæ. Fimm voru teknir á laugardag, átta á sunnudag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru tíu karlar á aldrinum 18-56 ára og fimm konur, 17-39 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og þrír hafa aldrei öðlast ökuréttindi.