4 Júní 2013 12:00

Tuttugu og sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tuttugu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og þrír í Kópavogi og Hafnarfirði. Sjö voru teknir á laugardag, sautján á sunnudag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta var tuttugu og einn karl á aldrinum 18-65 ára og fimm konur, 17-36 ára. Tíu þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og tveir hafa aldrei öðlast ökuréttindi.