24 September 2013 12:00

Tuttugu og sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina og sjö til viðbótar í gær. Einn úr þessum hópi var tekinn tvisvar sama daginn, en sá hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Lögreglan var víða við umferðareftirlit og stöðvaði t.a.m. um 200 ökumenn í miðborginni. Einn úr þeim hópi var ölvaður og tveimur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum.