1 Október 2013 12:00

Tuttugu og fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tuttugu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Garðabæ og Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudagskvöld, ellefu á laugardag og tólf á sunnudag. Þetta voru tuttugu og tveir karlar á aldrinum 19-52 ára og tvær konur á fertugsaldri. Fjórir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.