26 Nóvember 2013 12:00

Tuttugu og tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrettán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, fjórir í Hafnarfirði, þrír í Kópavogi og einn í Garðabæ og Mosfellsbæ. Þrír voru teknir á föstudagskvöld, ellefu á laugardag og átta á sunnudag. Þetta voru tuttugu karlar á aldrinum 17-75 ára og tvær konur, 17 og 57 ára. Sex þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og þrír hafa aldrei öðlast ökuréttindi.