11 Nóvember 2013 12:00

Tuttugu og tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tólf þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, sex í Hafnarfirði, tveir í Mosfellsbæ og einn í Kópavogi og Garðabæ. Þrír voru teknir á föstudagskvöld, níu á laugardag, níu á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru sautján karlar á aldrinum 18-52 ára og fimm konur, 22-44 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og tveir hafa aldrei öðlast ökuréttindi.