31 Mars 2014 12:00

Tuttugu og sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sautján þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, fjórir í Hafnarfirði, tveir í Garðabæ og Mosfellsbæ og einn í Kópavogi. Fjórir voru teknir á föstudagskvöld, þrettán á laugardag, sjö á sunnudag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru tuttugu og fimm karlar á aldrinum 19-46 ára og ein kona, 50 ára. Sjö þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.