5 Maí 2014 12:00

Átján ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, fjórir í Hafnarfirði og einn í Kópavogi, Garðabæ og Mosfellsbæ. Sex voru teknir á laugardag, tíu á sunnudag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru fjórtán karlar á aldrinum 17-38 ára og fjórar konur, 18-27 ára. Fjórir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.