2 Júní 2014 12:00

Tuttugu og tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fjórtán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, fjórir í Hafnarfirði, tveir í Kópavogi og einn í Garðabæ og Mosfellsbæ. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, átta á laugardag, níu á sunnudag og þrír aðfaranótt mánudags. Þetta voru nítján karlar á aldrinum 17-55 ára og þrjár konur, 19-40 ára. Fjórir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.