7 Júlí 2014 12:00

Tuttugu og fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fjórtán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, sex í Hafnarfirði og tveir í Garðabæ og Mosfellsbæ. Einn var tekinn á föstudagskvöld, sextán á laugardag og sjö á sunnudag. Þetta voru átján karlar á aldrinum 17-60 ára og sex konur, 20-37 ára. Fimm þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.