15 September 2014 12:00

Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tólf þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Mosfellsbæ. Fjórir voru teknir á laugardag, sjö á sunnudag og þrír aðfaranótt mánudags. Þetta voru níu karlar á aldrinum 18-43 ára og fimm konur, 18-30 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.