7 Janúar 2015 12:16

Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Fjórir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi og á Seltjarnarnesi. Þetta voru allt karlar á aldrinum 19-50 ára, en tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.