3 Febrúar 2015 13:19

Sextán ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fjórtán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði og á Seltjarnarnesi. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, sjö á laugardag, sex á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru þrettán karlar á aldrinum 17-48 ára og þrjár konur, 19-21 árs. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi. Lögreglan hafði afskipti af einum ölvuðum ökumanni til viðbótar, en sá var á reiðhjóli.