5 September 2016 12:27

Tuttugu og sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sextán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, fjórir í Hafnarfirði og Garðabæ, tveir í Kópavogi og einn í Mosfellsbæ. Fjórir voru teknir á föstudagskvöld, níu á laugardag, þrettán á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru tuttugu og fjórir karlar á aldrinum 16-77 ára og þrjár konur, 26-42 ára. Fimm þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og fjórir hafa aldrei öðlast ökuréttindi.