3 Júlí 2018 14:16

Tuttugu og þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átján voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Kópavogi og einn í Garðabæ og Hafnarfirði. Fimm voru teknir á föstudagskvöld, níu á laugardag, átta á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru tuttugu og tveir karlar á aldrinum 17-53 ára og ein kona á sjötugsaldri. Átta þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.