10 Júlí 2018 12:52

Tuttugu og átta ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sautján voru stöðvaðir í Reykjavík, sex í Hafnarfirði, fjórir í Garðabæ og einn í Kópavogi. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, tíu á laugardag, fimmtán á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru tuttugu og fjórir karlar á aldrinum 19-41 árs og fjórar konur, 20-37 ára. Sex þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.