30 Júlí 2018 14:33

Tuttugu og níu ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tuttugu voru stöðvaðir í Reykjavík, fimm í Kópavogi, þrír í Hafnarfirði og einn í Garðabæ. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, tíu á laugardag, fjórtán á sunnudag og þrír aðfaranótt mánudags. Þetta voru tuttugu og fjórir karlar á aldrinum 18-75 ára og fimm konur, 22-41 árs. Sjö þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og þrír hafa aldrei öðlast ökuréttindi.