4 Júní 2019 10:50

Fjörutíu og fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrjátíu og fjórir voru stöðvaðir í Reykjavík, fimm í Kópavogi, þrír í Mosfellsbæ og tveir í Hafnarfirði. Þrír voru teknir á föstudagskvöld, tuttugu og sex á laugardag, fjórtán á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru þrjátíu og átta karlar á aldrinum 17-61 árs og sex konur, 17-60 ára. Átta þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og sjö hafa aldrei öðlast ökuréttindi. Í tveimur málanna um helgina voru ökumenn sviptir ökuleyfi til bráðabirgða eftir afskipti lögreglu, en það var vegna ítrekaðra umferðarlagabrota viðkomandi.