25 Ágúst 2013 12:00

Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í Reykjavík á menningarnótt. Þetta voru tveir karlar á þrítugsaldri og einn á sjötugsaldri og þrjár konur um tvítugt. Fíkniefni fundust í fórum tveggja þessara ökumanna.