20 Ágúst 2012 12:00

Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu á Menningarnótt. Sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Þetta voru sex karlar karlar á aldrinum 17-57 ára og ein kona, 55 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.