15 Janúar 2008 12:00

Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi. Þrír voru stöðvaðir á laugardag, þrír á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Sex voru teknir í Reykjavík og einn á Álftanesi. Þetta voru sex karlar á aldrinum 19-60 ára og ein kona, 21 árs. Á sama tímabili tók lögreglan fjóra ökumenn sem voru undir áhrifum fíkniefna. Þeir voru allir stöðvaðir í Reykjavík en um var að ræða þrjá karla á aldrinum 19-25 ára og eina konu, 22 ára.

Fjörutíu og sjö umferðaróhöpp var tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en tvö þeirra má rekja til ölvunaraksturs. Flest óhöppin voru minniháttar en í nokkrum tilvikum þurfti þó að flytja fólk á slysadeild. Í fimm tilfellum var um afstungu að ræða.