12 Ágúst 2008 12:00

Nítján ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrír voru stöðvaðir á föstudag, níu á laugardag, fjórir á sunnudag og þrír aðfaranótt mánudags. Ellefu voru teknir í Reykjavík, fjórir í Kópavogi, tveir í Hafnarfirði og einn í Garðabæ og á Seltjarnarnesi. Þetta voru sextán karlar á aldrinum 18-54 ára og þrjár konur, 27, 48 og 62 ára. Sex karlanna eru á þrítugsaldri, tveir á fertugsaldri, þrír á fimmtugsaldri, einn á sextugsaldri og fjórir undir tvítugu. Sjö af þessum ökumönnum reyndust jafnframt vera próflausir.

Um helgina tók lögreglan fjóra ökumenn sem voru undir áhrifum fíkniefna en þrír þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Þetta voru allt karlar á aldrinum 19-34 ára.