9 Desember 2009 12:00

Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í gær. Annar var stöðvaður í Skeifunni en hinn á Sæbraut. Um var að ræða tvo karla, sá eldri er á sextugsaldri en sá yngri á fertugsaldri. Á Sæbraut hafði lögreglan einnig afskipti af allmörgum ökumönnum sem óku of greitt en hinir sömu eiga yfir höfði sér sekt fyrir of hraðan akstur.