2 Júlí 2007 12:00

Lögreglu bárust upplýsingar um hávaða frá íbúð í Grafarvoginum á föstudag. Íbúar í nágrenni kvörtuðu um langvarandi skemmtanahald og ónæði frá íbúðinni. Fjórir einstaklingar voru handteknir eftir að lögregla fann lítilræði af ætluðum fíkniefnum.  Hinum handteknu hefur nú verið sleppt og telst málið að fullu upplýst.