21 Febrúar 2022 13:28
Enn er óveður í aðsigi og því er mjög mikilvægt að fólk fylgist vel með veðri, færð og tilkynningum frá almannavörnum. Appelsínugul viðvörun vegna veðurs gildir síðdegis í dag, eða frá kl. 16-19, en síðan tekur við rauð viðvörun, sem gildir frá kl. 19-22.30. Þá verður aftur appelsínugult ástand til kl. 1 í nótt. Í fyrramálið og fram yfir hádegi á morgun, þriðjudag, eða frá kl. 6-13 er gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu.
Spáð er suðaustan hvassviðri eða stormi síðdegis og aftur seint í kvöld og fram yfir miðnætti, en suðaustan roki frá kl. 19-22.30 (rautt ástand). Á morgun, þriðjudag, er svo spáð suðvestan stormi með úrkomu á höfuðborgarsvæðinu fram yfir hádegi.
Búast má við talsverðri rigningu eða snjókomu á meðan veðrið gengur yfir. Snjórinn getur valdið ófærð á götum. Rigning og leysing getur valdið vatnselg og því þarf að reyna að tryggja að vatn komist í fráveitukerfi og til að forðast vatnstjón. Íbúar eru minntir á að huga að ræsum/niðurföllum við hús sín. Útlit er fyrir truflanir á samgöngum, en upplýsingar um lokanir á helstu vegum til og frá höfuðborgarsvæðinu er að finna á heimasíðu Vegagerðarinnar. Líkur eru á foktjóni og er fólki ráðlagt að ganga frá lausum munum. Verktökum er bent á að ganga vel frá framkvæmdasvæðum.
Förum varlega og verum ekki á ferðinni að nauðsynjalausu.