4 Nóvember 2020 15:46

Heiðarlegur borgari fann peninga í Reykjavík í vikunni og kom þeim í hendur lögreglu. Peningarnir voru í umslagi, en um er að ræða upphæð sem skiptir flesta máli. Vonandi er hægt að koma þeim aftur í réttar hendur, en eigandinn verður beðinn um staðfestingu á eignarhaldi, líkt og tíðkast í svona málum. Hægt er að senda fyrirspurn á netfangið rafn.gudmundsson@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.