6 Maí 2020 08:30

Í dag, miðvikudaginn 6. maí, mun verktaki loka römpunum tveimur norðan Strandgötubrúar vegna vegaframkvæmda við breikkun Reykjanesbrautar. Samdægurs munu ramparnir tveir sunnan Strandgötubrúar vera opnaðir. Hjáleiðir eru um Ásbraut og Krýsuvíkurveg. Þessar lokanir mun standa yfir fram eftir sumri.

Verktaki biður velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar lokanir kunna að valda.