18 Apríl 2017 10:16

Á tíunda tímanum barst Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um að framið hafi verið vopnað rán í apóteki í Garðabæ, en þangað inn hafði ruðst maður vopnaður exi, hótað þar starfsfólki og komist undan með feng. Upplýsingar lágu fyrir um bifreið sem ræninginn notaði til flóttans en lögreglan varð fljótt vör við bifreiðina og veitti eftirför. Var bifreiðinni ekið með miklu hraða gegnum Garðabæ og inn í Hafnarfjörð, en meðal annars var bifreiðinni ekið utan í aðrar bifreiðar á flóttanum. Eftirförinni lauk með því að lögreglan átti engra annarra kosta völ en að aka utan í ökutækið og stöðva för þess þannig. Er það mat Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að mikil mildi hafi orðið til þess að enginn skaði hlaust af hátterni mannsins. Einn maður var handtekinn í bifreiðinni og er málið í rannsókn í þessum töluðu orðum. Starfsfólk apóteksins mun þiggja áfallahjálp vegna málsins.