9 September 2009 12:00

Karl um tvítugt hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á ráni sem var framið í matvöruverslun við Hlemm á ellefta tímanum í gærkvöld. Ekki hefur reynst unnt að yfirheyra manninn vegna ástands hans. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.