6 Júní 2013 12:00

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á ráni og frelsissviptingu í Grafarvogi um síðustu helgi miðar vel. Fjórir karlar á aldrinum 18-23 ára voru handteknir í tengslum við málið og úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 10. júní, en tveimur þeirra hefur nú verið sleppt úr haldi lögreglu. Þeir sem enn eru í gæsluvarðhaldi eru 19 og 20 ára. Allnokkrir til viðbótar hafa verið kallaðir í skýrslutöku hjá lögreglunni í þágu rannsóknarinnar.

Eins og fram hefur komið ruddust árásarmenn inn í íbúð karls á sjötugsaldri, bundu hann á höndum og fótum og stálu frá honum átta skotvopnum úr vopnaskáp, auk skotfæra. Brotaþoli og árásaraðilar þekkjast ekki, en varsla skotvopnanna á heimili mannsins var í fullu samræmi við það sem reglur kveða á um. Skotvopnin voru endurheimt samdægurs, en þau fundust við húsleit í Hafnarfirði. Tvær aðrar húsleitir voru framkvæmdar í sama bæjarfélagi og fundust þá nokkur vopn til viðbótar, en í báðum tilvikum var um að ræða húsnæði sem tengist Outlaws. Hluta vopnanna má sjá á myndinni hér að neðan, en þau voru sýnd fjölmiðlamönnum í dag.