13 September 2019 17:49

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst rán sem var framið í fyrirtæki í miðborginni í byrjun mánaðarins, en þar var starfsmanni ógnað og hótað með mjög grófum hætti áður en ræninginn komst undan með talsvert af reiðufé. Sá síðarnefndi, karlmaður um þrítugt, var handtekinn fyrr í vikunni og játaði hann verknaðinn við yfirheyrslu hjá lögreglu. Starfsmanninum í fyrirtækinu var eðlilega mjög brugðið, en hann brást hárrétt við í afar erfiðum aðstæðum. Tekist hefur að endurheimta stóran hluta af ránsfénu.

Í upphafi málsins var á mjög litlu að byggja við rannsókn lögreglu, en hún lét strax kalla út sporleitarhunda til aðstoðar. Þá var farið yfir mikið af myndefni úr eftirlitsmyndavélum í miðborginni, bæði eftirlitsmyndavélum lögreglu og fyrirtækja, og það varð til þess að lögreglan fékk vísbendingar sem að lokum leiddi til handtöku ræningjans.