Frá vettvangi í iðnaðarhúsnæði við Miðhraun.
9 Apríl 2018 14:56

Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á eldsupptökum í iðnaðarhúsnæði við Miðhraun í Garðabæ á fimmtudagsmorgun er í fullum gangi, en brunavettvangur var afhentur lögreglu á föstudagskvöld. Af öryggissjónarmiðum var beðið með vettvangsrannsókn til mánudags, en þá átti vettvangur að vera kólnaður og hreinsun vegna slökkvistarfs að fullum lokið. Í dag hafa því brunasérfræðingar tæknideildar lögreglu verið við eldsupptakarannsókn á vettvangi ásamt brunaverkfræðingi frá Mannvirkjastofnun og sérfræðingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Í ljós hefur komið að enn er mikill hiti á því svæði sem rannsóknin beinist að, en unnið er að kælingu þess svæðis og óljóst hvernig rannsókninni muni miða áfram í dag. Ekki er því hægt að segja til um það á þessu stigi hvenær rannsókninni muni ljúka.

Þrátt fyrir að brunavettvangur hafi verið afhentur lögreglu daginn eftir eldsvoðann hefur verið unnið sleitulaust að málinu frá því eldurinn kom upp á fimmtudag. Í því fólst m.a. að afla ganga úr eftirlitsmyndavélum á og við vettvanginn og með skýrslutökum hjá vitnum og viðbragðsaðilum. Á föstudag var haldinn stöðufundur með fulltrúum lögreglu, slökkviliðs og Mannvirkjastofununar og farið yfir fyrirliggjandi gögn. Á fundinum voru enn fremur teknar ákvarðanir um hvað mætti rífa á brunavettvangi og hverju þyrfti að hlífa ef unnt væri m.t.t. rannsóknarhagsmuna.

Í öryggissjónarmiðum sem vísað er til hér að framan er bæði átt við hrunhættu og eins eldhreiður sem tók drjúgan tíma að slökkva í. Eins þurfti að hreinsa til í brunarústunum svo hægt væri að komast þar um með öruggum hætti.

Frá vettvangi í iðnaðarhúsnæði við Miðhraun.