6 Apríl 2018 19:04

Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á eldsupptökum í iðnaðarhúsnæði við Miðhraun í Garðabæ í gær er skammt á veg komin. Þar ræður mestu að hrunhætta er á brunavettvangi og því hefur tæknideild lögreglu ekki enn getað athafnað sig þar eins og vera skyldi, en vonir standa til að úr því megi bæta eftir helgina, eða fyrr. Rannsókn annarra þátta málsins er þó í fullum gangi og strax í gær hófst vinna við öflun ganga, m.a. úr eftirlitsmyndavélum og með skýrslutökum af vitnum. Brunavettvangur hefur verið lokaður af og er vaktaður. Ekkert hefur komið fram sem bendir til þess að saknæmt athæfi hafi átt sér stað í tengslum við eldsvoðann.