27 Janúar 2018 19:45

Síðastliðnar vikur og mánuði hafa margir stigið fram og lýst því að brotið hafi verið á þeim í orði og í verki. Konur eru þar í yfirgnæfandi meirihluta. Frásagnirnar eru margar og sumar svo átakanlegar að fólki er verulega brugðið. Sumar ná langt aftur í tímann, aðrar eru nýlegar. Í lýsingum kemur einnig fram að enginn þjóðfélagshópur er undanskilinn og að ætluð brot hafi fengið að þrífast á ólíklegustu stöðum.

Því hefur verið velt upp hvert hlutverk lögreglu sé í þessu sambandi. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu telur rétt að taka það skýrt fram að allir brotaþolar eru skjólstæðingar lögreglu. Á lögreglu hvílir rannsóknarskylda fái hún grun eða vitneskju um að brot hafi átt sér stað. Og það er hlutverk lögreglu og ákærenda að svara því hvort ætluð brot kunni að vera fyrnd eða hvernig sönnunarstöðu sé háttað.