19 Mars 2007 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann á þrítugsaldri í Smáralind síðdegis á föstudag. Maðurinn hafði keypt áfengi í vínbúð í verslunarmiðstöðinni en drykkjarföngin voru þó ekki til eigin nota heldur var kaupandinn að ganga erinda tveggja pilta, 16 og 17 ára, sem höfðu ekki aldur til að kaupa áfengi. Maðurinn og báðir piltarnir voru fluttir á svæðisstöðina í Kópavogi en foreldrar þeirra síðarnefndu voru kallaðir til. Maðurinn á sekt yfir höfði sér, lágmark 20 þúsund krónur, enda er hér um refsivert athæfi að ræða.

Atvik sem þetta er fjarri því að vera einsdæmi en annað slíkt kom upp á sama stað á laugardag. Þar áttu í hlut tvær konur á þrítugsaldri en þær eru grunaðar um að hafa keypt áfengi fyrir þrjú ungmenni sem eru á aldrinum 16-19 ára. Það mál er í rannsókn.