6 Nóvember 2007 12:00
Átta réttindalausir ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimm þeirra reyndust þegar hafa verið sviptir ökuleyfi og þrír höfðu aldrei öðlast ökuréttindi. Í hópi þeirra síðarnefndu var 16 ára piltur sem var sömuleiðis staðinn að hraðakstri. Fimm ökumenn voru teknir fyrir að tala í síma án þess að notast við handfrjálsan búnað og einn fyrir að aka gegn rauðu ljósi.
Á sama tímabili voru sjötíu og þrjú umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglunnar en fjögur þeirra má rekja til aksturs undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Flest óhöppin voru minniháttar en í nokkrum tilvikum þurfti þó að flytja fólk á slysadeild. Í fjórtán tilfellum var um afstungu að ræða.