23 Ágúst 2019 16:30

Reykjavíkurmaraþonið fer fram á morgun, en hlaupnar verða fimm mismunandi vegalengdir. Hlaupið hefur töluverð áhrif á umferðina og loka þarf götum á ákveðnum tímum af þeim sökum. Vegfarendur eru því beðnir um að sýna þolinmæði og tillitssemi, en greinargóðar upplýsingar um þetta allt saman er að finna á heimasíðu mótshaldara og er fólk hvatt til að kynna sér þær.

Reykjavíkurmaraþon – truflun á umferð