13 Mars 2007 12:00

Síðdegis í gær óskaði karlmaður á miðjum aldri eftir aðstoð lögreglu vegna grófra hótana sem honum höfðu borist. Lögreglan brást skjótt við enda mál sem þessi tekin mjög alvarlega. Farið var á heimili mannsins sem býr í fjölbýlishúsi á höfuðborgarsvæðinu. Á staðnum fengu lögreglumenn frekari vitneskju um málavexti en tilkynnanda var hótað af öðrum íbúa hússins þar sem þeir áttu í illdeilum á stigaganginum.

Misklíðin var sprottin af ágreiningi vegna þrifa á sameign hússins. Íbúarnir tveir höfðu rifist um hver ætti að ryksuga stigaganginn þessa vikuna. Lögreglumenn ræddu við hlutaðeigendur og héldu síðan á brott en málið er talið útkljáð. Á þessari stundu er þó ekki ljóst hvort búið sé að þrífa sameignina.