11 Ágúst 2019 23:31

Seinni stórtónleikar Ed Sheeran á Laugardalsvelli í kvöld fóru í alla staði mjög vel fram að mati  Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og, líkt og á tónleikunum í gærkvöld, voru tónleikagestir til mikillar fyrirmyndar. Samstarf lögreglunnar og þeirra sem komu að skipulagningu viðburðarins var sömuleiðis mjög gott, en um 10 mínútur liðu frá því að tónleikunum lauk og þar til síðustu gestirnir höfðu yfirgefið Laugardalsvöll. 

Engin teljandi vandamál komu upp á tónleikunum og var vaktin hjá lögreglumönnum á svæðinu með rólegasta móti.