24 September 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu  aðstoðaði í gær tollayfirvöld við  húsleit vegna gruns um sölu á sterum. Nokkuð magn af sterum og  fjármunum fundust við húsleitir auk þess sem Tollstjórinn lagði hald á nokkuð magn ólöglegs varnings. Þá handtók lögreglan „góðkunningja“ er hann var á gangi í miðborginni vegna gruns um sölu á fíkniefnum. Við leit á honum fundust 20 gr. af marihuana auk nokkurra fjármuna. Í framhaldinu var gerð húsleit á dvalarstað mannsins þar sem 180 gr. af marihuana fundust. Viðurkenndi maðurinn að efnin væru ætluð til sölu og telst málið  að fullu upplýst.